Leikhópur Menntaskólans að Laugarvatni hefur sett upp leikritið Djöflaeyjan! Djöflaeyjan er íslensk kvikmynd eftir Friðrik Þór Friðriksson og segir frá Badda og stórfjölskyldu hans sem býr í Reykjavík eftir stríð. Þar takast á fátækt, erfið fjölskyldutengsl, draumar, og lífsbarátta í samfélagi sem er að taka miklum breytingum. Leikritið er bæði dramatískt og stútfullt af húmor!
Sett verður upp fjórar leiksýningar og eru þær haldnar í Félagsheimilinu Aratungu í Reykholti, Bláskógabyggð.
Miðaverð er 3500kr, en frítt er inn fyrir 12 ára og yngri. Miðasala er á staðnum og í gegnum netfangið ml.leikfelag@gmail.com
Sýningar:
Fimmtudagur 20. mars kl. 20:00
Föstudagur 21. mars kl. 16:00
Föstudagur 21. mars kl. 20:00
Laugardagur 22. mars kl. 20:00
Ný stjórn nemendafélagsins Mímis í Menntaskólanum að Laugarvatni
Á aðalfundi nemendafélagsins Mímis, sem haldinn var fimmtudaginn 13. febrúar, var ný stjórn kjörin. Lilja Björk Sæland var kjörin stallari nemendafélagsins, með Ingunni Lilju Arnórsdóttur sem varastallara. Ársæll Árnason mun gegna hlutverki gjaldkera, á meðan Aron Arnar Fannarsson og Magnús Arngrímur Sigurðsson verða jafnréttis- og skólaráðsfulltrúar.
Íþróttastarf nemendafélagsins verður undir stjórn Vésteins Loftssonar og Reynis Inga Helgasonar, á meðan Gunnar Geir Rúnarsson og Elmar Örn Þorsteinsson leiða skemmtinefndina. Fannar Óli Ólafsson og Sigurður Emil Pálsson verða árshátíðarformenn, og Hjördís Katla Jónasdóttir tekur við sem tómstundaformaður. Elena Marquez Gunnlaugsdóttir verður ritnefndarformaður og Arnbjörg Ýr Sigurðardóttir mun sjá um vef- og markaðsmál.
Menntaskólinn að Laugarvatni óskar nýrri stjórn til hamingju með kjörið og þakkar fráfarandi stjórn fyrir gott samstarf. Við hlökkum til að sjá hverju nýja stjórnin mun koma til leiðar á komandi skólaári.
Skólameistari
Það eru allir velkomnir í Nemendafélaginu Mími og allar skoðanir eru leyfðar svo framarlega sem þær eru tjáðar með virðingu, vinsemd og umburðarlyndi. Við viljum samt sem áður hafa það á hreinu að hatursorð, rasismi, vanvirðing og önnur óæskileg hegðun er eitthvað sem við nemendafélagið líðum og styðjum ekki. Við hörmum það sem átti sér stað og viljum koma því fram að þetta er alls ekki í samræmi við það sem nemendafélagið Mímir sem og Menntaskólinn að Laugarvatni stendur fyrir.
Við viljum minna á að við sem sitjum í stjórn Mímis erum trúnaðarmenn nemenda sem geta alltaf leitað til okkar. Mímir mun alltaf styðja við bakið á nemendum og vernda hagsmuni þeirra. Það er alveg á hreinu að Mímir stendur með brotaþolum og fólki sem minna mega sín og líður ekki rasisma, hatur og vanvirðingu í hvaða málum sem er.
Ást og friður
Stjórn nemendafélagsins Mímis.
Kolfinna Sjöfn Ómarsdóttir, Stallari
Eydís Lilja Einarsdóttir, Varastallari
Emma Ýr Friðriksdóttir, Gjaldkeri
Ingunn Lilja Arnórsdóttir, Jafnréttis- og skólaráðsfulltrúi
Rakel Día Arnarsdóttir, Jafnréttis- og skólaráðsfulltrúi
Ásdís Helga Magnúsdóttir, Íþróttaformaður
Tómas Már Rossel Indriðason, Íþróttaformaður
Guðjón Árnason, Skemmtinefndarformaður
Jakob Máni Ásgeirsson, Skemmtinefndarformaður
Díana Dan Jónsdóttir, Árshátíðarformaður
Stefanía Maren Jóhannsdóttir, Árshátíðarformaður
Kjartan Brynjólfsson, Tómstundarformaður
Sæbjörg Erla Gunnarsdóttir, Ritnefndarformaður
Iris Dröfn Rafnsdóttir, Vef- og markaðsformaður.
Heil og sæl, mig langaði aðeins að rifja upp hvernig félagslífið í Menntaskólanum að Laugarvatni hefur verið síðan ný stjórn var kjörin þetta árið, og mig langar svo að taka ykkur með í þetta litla tímaflakk. Hérna er upprifjun pistlanna sem Ritnefndarformaður og Vef- og markaðsformaður hafa gefið út eftir aðalfund. Kíkjum á hvað var brallað :)
Það var mikil stemning á stjórnarskiptunum og spennan ríkti í loftinu þegar úrslit kosninga láu fyrir. Nýja stjórnin er: Stallari: Agnes Fríða, Varastallari: Hekla Dís, Gjaldkeri: Ástrós Eva, Jafnréttis- og skólaráðsfulltrúar: Arnfríður Mára og Eydís Lilja, Íþróttaformenn: Kjartan Helgason og Ragnar Dagur, Skemmtinefndarformenn: Heiðar Óli og Teitur Snær, Árshátíðarformenn: Þórkatla Loftsdóttir og Kolfinna Sjöfn, Tómstundarformaður: Ragnar Leó, Ritnefndarformaður: Katrín Ölversdóttir, Vef og markaðsfulltrúi: Hrafntinna Jónsdóttir
Við þökkum fyrri stjórn fyrir einstaklega vel unnin störf. Til fagnaðar nýrrar stjórnar var haldið ball og var það svo sannarlega eftirminnilegt og skemmtilegt. Gaman að segja frá því að okkar eigin nemendur úr fyrsta bekk stofnuðu hljómsveit að nafni Verndarar Lýðveldisins og létu ljós sitt skína á sviðinu með söng og hljóðfæra spili sem engum leiddist við. Að auki tóku þeir frumsamið lag eftir einn af hljómsveitarmeðlimunum sem snerti hjartarætur. Hljómsveitin Made In Sveitin kom á eftir þeim og hélt uppi fjörinu með skemmtilegum lögum sem allir nemendur tóku hoppandi kátir undir.
Svo var komið að dásamlegu heimavikunni okkar og hver og einn nemandi virtist sáttur með hana. Þá vorum við á fullu að undirbúa leikrit. Leikritið sem leikhópurinn okkar sýndi var Sódóma Reykjavík, leikstjórar og famkvæmendur leikritins voru þau Agnes Fríða og Ragnar Leó. Þessir afreks nemendur voru búnir að frumsemja handritið eftir myndinni Sódóma Reykjavík og koma þessu stórkoslega leikriti í framkvæmd. Við tókum svo á móti gestum með bros á vör.
Tveim vikum seinna fékk hver árgangur sitt eigið bekkjarkvöld, það var svo sannarlega huggulegheit hjá okkur og eldaði Sveinn kokkurinn okkar dásamlegan mat fyrir hvern árgang. Síðan kom að Dagamunum og Dollanum, lof mér að segja ykkur frá því. Þvílíka úrvalið af námskeiðum og viðburðum sem hægt var að taka þátt í. Meðal annars var í boði að fara í klifur, hundaklapp, blöðrugerð, kennslu hjá Gumma Emil, hrútaþukl, LARP, Zumba og Bob Ross málun. Að auki kom Sigga Kling og var með peppandi kynningu fyrir okkur. Á Dollanum voru liðin í þrautakepninni skýrð í höfuð á dýrum þetta árið og voru það býflugurnar sem höfðu sigurinn. Eftir Dollann var komið að árshátíðinni og skutust allir í sitt fínasta púss. Mikael Kaaber var veislustjórinn okkar og sló í gegn, Svenni kokkurinn okkar útbjó glæsilega og gómsæta þriggja rétta máltíð og skemmtiatriðin voru stórfengleg. Hljómsveitin Stuðlabandið spilaði fyrir okkur eftirminnanlega takta sem fengu alla til að tjútta. Meira að segja Pálmi húsbóndinn okkar og Erla húsfreyja ákváðu að sína okkur taktana sína á dansgólfinu. Vikan eftir á var frekar slök í samanburði við þar síðustu viku. Íþróttaformennirnir okkar héldu bekkjarmót í blaki, sigurvegarar mótsins voru þriðji bekkurinn.
Við vorum búin að vera í fullum gangi að undirbúa æfingatónleika kórsins sem voru haldnir 28. mars í íþróttahúsinu á Laugarvatni. Tónleikarnir gengu dásamlega og var boðið upp á kleinur og kaffi eftir sönginn. Þessir tónleikar voru undirbúningur fyrir Ítalíu ferðina sem kórinn okkar fór í 19-24 apríl, spennan rauk í loftinu skal ég segja ykkur. En tónleikar voru ekki það eina sem við krakkarnir vorum að brasa, stjórnin okkar hélt þemaball í Eyvindartungu og var það fjórða og seinasta ball skólaársins. Þemað í ár var disco og nemendur mættu svo sannarlega í sínu fínasta disco pússi. Hljómsveitin Koppafeiti spilaði fyrir okkur frábær disco lög sem fékk nemendur til að tjútta á dansgólfinu. Ballið gekk stórkostlega og skottuðust allir heim í páskafrí eftir það.
Þann 19. Apríl fórum við í kórnum í ferð til Ítalíu. Við skelltum okkur í litla bæinn Bolzano í norður Ítalíu. Dagskráin veitti ekki vonbrigðum, við kíktum í þó nokkrar kirkjur og vorum ekki að spara sönginn í heimsóknum okkar í kirkjurnar. Tívolíið Gardaland var uppáhalds áfangastaður margra. Þar var farið í hvert einasta tæki og alls ekki sparað ferðirnar, sólin var svo góð að láta sjá sig og allir nutu hennar í botn. Við skelltum okkur í fjöllin í Bolzano og kíktum á herra hunang, þar fengu allir að splæsa í alls konar hunangs vörur líkt og sápur, krem, varasalva, handáburð og auðvitað hunang með alls konar bragðtegundum. Ég get líka lofað ykkur því að það var ekki pasta og pítsu skortur í mataræðinu okkar á Ítalíu. Þann 24. apríl var þessari stórskemmtilegu ferð okkar lokið.
Síðustu vikuna fyrir námsmatstíma héldum við upp á krafta keppni, þar sem sigurvegararnir voru þau Hákon Kári og Rannveig Arna, og við héldum líka vatnsslag. Hvað annað en ís kaldur vatnsslagur heldur manni ferskum og tilbúinn í slaginn á prófatíma? Við ætluðum heldur betur ekki að missa af Eurovision í þokkabót og skelltum útsendingunni uppá skjávarpa í einni stofunni okkar, gríðarlega spennandi skal ég segja ykkur. Elsku þriðji bekkurinn okkar hélt dimmisjó og fóru þau um allar trissur innan skólans í Pésa breiðnefs búningum. Þeirra verður sárt saknað og við hin erum glöð að þau skemmtu sér á seinasta skóladegi sínum. Við vildum þakka fyrir lesturinn með stuttri uppfærslu á félagslífinu í ML. Takk fyrir okkur og við sjáumst hress og kát eftir sumarið.
Umjsón - Katrín Ölvers og Hrafntinna Jóns
Þar sem sóttvarnarlögum hafa verið slakað og gott veður var úti þá gátum við nemendur í Menntaskólanum að Laugarvatni loksins haldið okkar árlega snjóslag þann 31. janúar, en þetta hefur verið hefð í fjölda mörg ár hjá skólanum. Nemendur söfnuðust saman á túninu fyrir framan Kös og höfðust leikarnir. Hefðin hefur verið að fyrsti bekkur keppir á móti öðrum og þriðja bekk. Mætingin hjá bekkjunum var mjög skipt og hefði fyrsti bekkur mátt standa sig aðeins betur.
Mikil gleði ríkti hjá nemendum við þennan viðburð og hefur hann alltaf verið mjög vel sóttur. Það má alveg segja að þetta var einmitt það sem nemendur þurftu til að koma félagslífinu aftur í almennan farveg. Niðurstöðurnar voru þær að annar og þriðji bekkur höfðu vinninginn þetta árið.
Umsjón
Jóhannes Torfi Torfason og Margrét Inga Ágústsdóttir
Þessa dagana eru stjórnarskipti nemendafélagsins Mímis á næsta leiti og því mikið að gerast. Frambjóðendur eru með áróður, halda framboðsræður og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að sannfæra samnemendur sína til að kjósa sig. Allt þetta hefur þurft að fara fram með breyttum hætti til að fara eftir tilmælum Almannavarna en gengur þó vel.
26. janúar tók umhverfisnefnd ML við fimmta grænfána skólans. Umhverfisnefndin fundar reglulega og veltir fyrir sér hverju má breyta og hvað má fara betur í allskyns málum tengdum umhverfisvernd.
Fimmtudag og föstudag 11. og 12. febrúar var kórinn með litlar kórbúðir innan skólans. Kórfélögum var skipt niður í hópa og annars vegar sungu með kórstjóra eða sinntu hópefli til að hrista saman hópinn.
Fimmtudaginn 11. febrúar klæddu nemendur sig í sín hlýjustu föt og skelltu sér út í snjóstríð. Snjórinn var mjúkur og fullkominn fyrir snjóboltamótun. Nemendum þótti mjög gott að komast út að leika og skemmtu sér allir mjög vel.
Föstudaginn 12. febrúar var dansað gegn ofbeldi í sölum skólans. „Milljarður rís“ er
mikilvægt málefni gegn kynbundnu ofbeldi og fólk um allan heim tekur smástund úr degi sínum til að dansa. Þátttaka var góð en vel passað upp á allar sóttvarnir.
Nú er staðnám loks hafið á ný í Menntaskólanum að Laugarvatni. Það er mikill munur og mjög gott að fá að hitta samnemendur og kennara aftur eftir langan tíma í fjarnámi og vonum við að staðnámið haldist það sem eftir er af skólaárinu.
Félagslífið er allt að renna af stað aftur hjá nemendum en til dæmis eru ML tímar, skipulagðir íþróttatímar utan skóla, komnir í gang á ný. Þar eru þó fjöldatakmarkanir eins og annarsstaðar. Einnig er Kássan, spilahópur innan skólans, farin að hittast og spila Dungeons & Dragons.