Ný önn framundan, hlökkum svo til!
Menntaskólinn að Laugarvatni er Heimavistarskóli sem hefur sitt að segja þegar kemur að félagslífi nemenda. Nemendur velja sér herbergisfélaga eða velja að deila herbergi með bekkjarfélaga að handahófi sem gæti orðið vinur til framtíðar. Það getur verið mjög þroskandi ferli að læra að deila herbergi með öðrum. En ef nemandi er ekki tilbúinn í það ferli er einnig hægt að fá að vera einn í herbergi.
Á svæðinu eru þrjár heimavistir; Kös, Nös og Fjarvist. Hver heimavist er með setustofu þar sem nemendur geta hist til að spila, læra eða jafnvel bara spjalla. Einnig eru ískápur, samlokugrill og hraðsuðuketill á öllum setustofum.
Heimavistirnar og bekkjarkerfið gerir nemendur mjög nána og góða vini.
Auk félagslífsins á heimavistunum er alls konar skemmtilegt skipulagt utan skóla til að halda félagslífinu gangandi, til að mynda bekkjarmót í allskonar íþróttum, litlu jól og alls konar öðruvísi viðburðir sem lesa má meira um undir "Viðburðir" hérna að ofan.
Á Kös eru tvær húsálmur á tveimur hæðum. Í hvorri álmu eru 13 eins manns herbergi og 12 tveggja manna herbergi.
Á efri hæð milli álmanna er setustofa. Inn af henni er lítið eldhús þar sem nemendur hafa aðgang að kæli, brauðgrilli, örbylgjuofni og leirtaui.
Sameiginleg baðherbergi eru á Kös. Á hverjum gangi eru fjórar sturtur og fjögur salerni.
Á Nös eru tvær húsálmur á tveimur hæðum. Þar eru 16 tveggja manna herbergi, 18 eins manns herbergi og 4 eins til tveggja manna herbergi.
Á efri hæð milli álmanna er setustofa. Á setustofunni er eldhúsaðstaða með kæli, brauðgrilli, örbylgjuofni og leirtaui.
Öll herbergi eru með sér baðherbergi.
Fjarvist er á efstu hæð í skólabyggingunni sjálfri, þ.e. í sömu byggingu og skólastofur, skrifstofur, þvottahús, bókasafn, félagsaðstaða og mötuneyti. Þar eru 13 tveggja manna herbergi, öll með sér baðherbergi.
Þægileg setustofa er á Fjarvist með sófum, kæli, örbylgjuofni og brauðgrilli.
Finndu fleyri upplýsingar um heimavistirnar, vistarverði og vistarreglur á síðu skólans!
Þér er alltaf velkomið að hafa samband við meðlimi stjórnar, plís okkur leiðist að skrifa tölvupósta!